Konur hvattar til að ganga út 24. október

Frá kvennafrídeginum 2016 þegar konur fjölmenntu á samstöðufund á Austurvelli …
Frá kvennafrídeginum 2016 þegar konur fjölmenntu á samstöðufund á Austurvelli í Reykjavík mbl.is/Árni Sæberg

„Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!“ verður yfirskrift kvennafrídagsins 24. október næstkomandi. BSRB, heildarsamtök stéttarfélaga starfsmanna í almannaþjónustu, hvetja konur til að leggja niður vinnu klukkan 14:55 miðvikudaginn 24. október og fylkja liði á samstöðufund á Arnarhóli sem hefst klukkan 15:30. Að fundinum standa samtök kvenna og samtök launafólks.

„Síðastliðið ár hafa frásagnir kvenna af áreitni, ofbeldi og misrétti á vinnustöðum undirstrikað að brýnt sé að tryggja öryggi kvenna og jaðarsettra hópa á vinnumarkaði. Nú er nóg komið, konur eiga að vera óhultar heima og óhultar í vinnu!“ segir í frétt á vef BSRB.

Daglegum vinnuskyldum kvenna lýkur klukkan 14:55

Þar er einnig  vísað í nýjar tölur frá Hagstofu Íslands um launamun kynjanna. Þar kemur fram að meðalatvinnutekjur kvenna eru 74 prósent af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 26 prósent lægri atvinnutekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir 5 klukkustundir og 55 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9 til 17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:55.

„Með þessu áframhaldi ná konur ekki sömu launum og karlar fyrr en árið 2047 – eftir 29 ár! Eftir því getum við ómögulega beðið!“ segir í tilkynningu.

Sjötta skiptið sem konur ganga út

Kvennafrídagurinn var fyrst haldinn 24. október árið 1975 á kvennaári Sameinuðu þjóðanna. Þann dag lögðu konur um land allt niður vinnu til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir þjóðfélagið.

Síðan hafa konur komið saman og krafist kjarajafnréttis og samfélags án ofbeldis fjórum sinnum, 1985, 2005, 2010 og 2016.

Frá fyrsta kvennafrídeginum árið 1975.
Frá fyrsta kvennafrídeginum árið 1975.

„En betur má ef duga skal: Þótt Ísland eigi að heita paradís fyrir konur í alþjóðlegu samhengi er ljóst að víða er pottur brotinn,“ segir í tilkynningu. Samtök kvenna og samtök launafólks benda á að enn er langt í land með að ná jöfnum launum og jöfnum kjörum. „Enn verða konur fyrir kynbundnu ofbeldi og áreitni á vinnustöðum sem og heima fyrir, eins og #MeToo bylgja síðasta vetrar minnti okkur öll harkalega á. Enn eru kvennastörf minna metin þegar kemur að launum, réttindum og virðingu í samfélaginu.“

Konur eru því hvattar til að sameinast á kvennafrídeginum og krefjast breytinga. „Hættum að breyta konum – breytum samfélaginu – til hins betra!“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert