Árekstur við Hagkaup í Garðabæ

mbl.is/Eggert

Árekstur varð við Hagkaup í Garðabæ í kvöld. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru tveir sjúkrabílar sendir á staðinn, eftir að tilkynnt var um áreksturinn um níuleytið í kvöld.

Tveir eru sagðir hafa slasast í árekstirnum og voru þeir komnir út úr bílnum er sjúkrabílarnir komu á vettvang, en ekki liggur fyrir hvort að meiðsl þeirra séu alvarleg.

Dælubíll var einnig sendur á staðinn til að hreinsa slysstað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert