Göngumaður fannst kaldur og hrakinn

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í kvöld til að aðstoða við leit að manni sem villtist á göngu á Bláfjallaleið. Hópur frá Björgunarsveit Reykjavíkur fann manninn kaldan og hrakinn, en heilan á húfi um tuttugu mínútur í ellefu. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var maðurinn fluttur með þyrlunni niður á veg til lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert