Hörkumæting og samstaðan greinileg

„Hörkumæting“ var á opnum fundi hjá Flugfreyjufélagi Íslands í hádeginu þar sem rætt var um stöðu flugfreyja í hlutastarfi hjá Icelandair. Þetta segir Berglind Hafsteinsdóttir formaður félagsins hún segir fólk ennþá vera að átta sig á þeirri stöðu sem það er gagnvart vinnuveitandanum.

Í myndskeiðinu eru rætt við Berglindi eftir fundinn.

Næstu skref eru frekara samráð við félagsmenn og Berglind á von á að í kjölfarið sendi félagið frá sér ályktun varðandi stöðuna þar sem flug­freyj­ur og flugþjónar í hluta­starfi hjá Icelanda­ir þurfa að ákveða hvort þau vilja ráða sig í fulla vinnu hjá fyr­ir­tæk­inu eða láta af störf­um um ára­mót­in.

Aðgerðir flugfélagsins eiga að bæta rekst­urinn og sam­keppn­is­hæfni þess að sögn forsvarsmanna Icelandair en eiga ekki við um flug­freyj­ur og flugþjóna sem eru bún­ir að vinna í 30 ár eða meira hjá flug­fé­lag­inu eða eru 55 ára og eldri. Öllum öðrum, 118 af 900 starfs­mönn­um, stend­ur til boða að fara í fullt starf um áramótin.

Berglind segir að ekki hafi einungis starfsmenn í hlutastarfi mætt á fundinn í hádeginu og það sé til marks um samstöðuna innan stéttarinnar. Hún segir að samskiptin við stjórnendur Icelandair hafi ekki verið mikil undanfarna daga en stjórnendur funda á þriðjudag með starfsmönnum og í kjölfarið verður boðað til formlegs fundar hjá Flugfreyjufélaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert