Deilt um mastur og útsýnispall

Útfærsla Arkís á loftmastri Sýnar og tækniskýli með útsýnispalli á …
Útfærsla Arkís á loftmastri Sýnar og tækniskýli með útsýnispalli á toppi Úlfarsfells. Tillagan fer nú í deiliskipulagsferli. Teikning/Arkís

Borgarráð Reykjavíkur hefur fallist á tillögu umhverfis- og skipulagsráðs að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir svæði á toppi Úlfarsfells þar sem fyrirhugað er að reisa 50 metra hátt fjarskiptamastur fyrir loftnet og tækniskýli með útsýnispalli.

Umrædd framkvæmd á að tryggja fullnægjandi útvarps- og fjarskiptaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu en til að lágmarka sjónræn áhrif mannvirkja er lagt til að unnið verði með náttúruleg byggingarefni á þann hátt að mannvirkin falli sem best inn í landslagið og umhverfið.

Ágreiningur var um málið í umhverfis- og skipulagsráði og borgarráði. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og áheyrnarfulltrúi Miðflokksins lögðust gegn tillögunni, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert