Gekk út með fulla kerru án þess að borga

mbl/Arnþór

Upp kom vélarbilun í tvíþekju á flugi nálægt Reykjavík rétt fyrir klukkan fimm í dag, en henni var lent á Reykjavíkurflugvelli án vandræða, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Um þrjúleytið í dag var maður uppvís að því í austurborginni að ganga út úr matvöruverslun með fulla innkaupakerru án þess að borga. Maðurinn reyndist vera of ölvaður til að unnt væri að taka af honum skýrslu og verður hann því vistaður í fangageymslu þar til af honum rennur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert