Verkalýðsleiðtogar gagnrýna Icelandair

Verkalýðsleiðtogarnir mótmæla aðgerðum Icelandair harðlega.
Verkalýðsleiðtogarnir mótmæla aðgerðum Icelandair harðlega. mbl.is/Eggert

Kapítalísk græðgisvæðing býr til efnahagslegan óstöðugleika, ekki kröfur vinnuaflsins um sanngirni, það hefur sagan kennt okkur og því fordæmum við að ráðist skuli með þessum hætti að hagsmunum starfsfólks Icelandair,“ segja þau Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, og Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands, í sameiginlegri yfirlýsingu sem birtist á Facebook-síðu Sólveigar Önnu síðdegis í dag.

Þau mótmæla „harðlega“ þeirri ákvörðun Icelandair að setja flugþjónum og -freyjum sem eru í hlutastarfi hjá fyrirtækinu þá afarkosti að ráða sig í fulla vinnu eða láta ellegar af störfum.

„Í ljósi þess að stjórn félagsins hefur á síðastliðnum tveimur árum greitt hluthöfum rúman 1,3 milljarð í arð vekur það furðu að ráðast eigi að atvinnuöryggi þeirra sem gert hafa rekstur fyrirtækisins mögulegan; þeim sem unnið hafa vinnuna, með því að banna hlutastörf,“ skrifa verkalýðsleiðtogarnir í yfirlýsingu sinni.

Þau segja jafnframt að allt tal um háan launakostnað Icelandair sé algjörlega ómarktækt fyrr en stjórnendur félagsins axli ábyrgð og afsali sér „ofurlaunum og kaupaukagreiðslum, upphæðum sem eru margföld laun vinnuaflsins á íslenskum vinnumarkaði“.

Eins og svo oft áður í íslensku samfélagi beinast aðgerðirnar að stórri kvennastétt sem ætlast er til að beri byrðar „hagræðingar“ og sparnaðar. Enn á ný sjáum við hversu kerfisbundin kvenfyrirlitningin er í þjóðfélaginu og hvernig hagsmunir efnahagslegra forréttindahópa vega ávallt þyngra en virðing fyrir kvennastörfum,“ segja verkalýðsleiðtogarnir enn fremur í yfirlýsingu sinni, sem lesa má hér að neðan.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert