Einn fluttur á slysadeild eftir umferðaslys

Á vettvangi á gatnamótum Kringlumýrar- og Háaleitisbrauta.
Á vettvangi á gatnamótum Kringlumýrar- og Háaleitisbrauta. Ljosmynd/Gunnar Guðmundur

Einn var fluttur á slysadeild eftir umferðaróhapp á ellefta tímanum á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík. Lentu tveir bílar saman, en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er talið að um minniháttar áverka sé að ræða.

Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang vegna málsins, en ekki er að svo stöddu vitað hversu margir voru í bílunum tveimur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert