Beiðni Stakkbergs rædd í bæjarstjórn

Verksmiðja United Silicon í Helguvík. Um­hverf­is- og skipu­lags­ráð Reykja­nes­bæj­ar hafnaði …
Verksmiðja United Silicon í Helguvík. Um­hverf­is- og skipu­lags­ráð Reykja­nes­bæj­ar hafnaði beiðni Stakk­bergs um að vinna til­lögu að deili­skipu­lagi á kís­il­ver­inu í Helgu­vík. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar mun hvorki funda með fulltrúum Stakkbergs ehf. í dag né á morgun að sögn Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar.

Um­hverf­is- og skipu­lags­ráð Reykja­nes­bæj­ar hafnaði í síðustu viku beiðni Stakk­bergs um að vinna til­lögu að deili­skipu­lagi á kís­il­ver­inu í Helgu­vík, en Stakkberg er fé­lag í eigu Ari­on banka, sem keypti starf­sem­ina í Helgu­vík af þrota­búi United Silicon.

Greindi mbl.is frá því að Þórður Ólaf­ur Þórðar­son, stjórn­ar­formaður Stakkbergs, hefði í kjölfarið óskað eft­ir skýr­ing­um frá bæj­ar­stjórn vegna máls­ins og vildi fund um málið í dag, til að sjá hvað mönn­um þótti vanta upp á til­lög­una.

„Það verður ekki af fundinum í dag eða á morgun, en það er bæjarstjórnarfundur á morgun þar sem að þetta mál verður til umræðu,“ segir Kjartan Már.

„Hvort að við hittum fulltrúa Stakkbergs eftir það, það má vel vera,“ bætti hann við en kvaðst ekkert geta sagt um það hversu mikil eða djúp umræða verði um málið annað kvöld.

Fulltrúar íbúa­sam­tak­anna And­stæðing­ar stóriðju í Helgu­vík hafa farið fram á að fá að vera viðstadd­ir fund­ Stakkbergs og bæjarstjórnar ásamt lög­manni sam­tak­anna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert