Hljóp á brott frá lögreglunni

mbl.is/Eggert

Ökumaður sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði stöðvað í Grafarvogi vegna gruns um ölvunarakstur hljóp úr bíl sínum á brott frá lögreglunni um fimmleytið í dag.

Að sögn Kristjáns Ólafs Guðnasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns á Vínlandsleið, tók örstuttan tíma að hafa hendur í hári mannsins, sem fannst utandyra.

Hann bíður nú skýrslutöku hjá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert