Hótaði að berja lögregluþjón með kylfu

Embætti héraðssaksóknara hefur ákært karlmann á þrítugsaldri fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa hótað lögreglumanni líkamsmeiðingum í Grafarvogi í mars í fyrra. Samkvæmt ákæru málsins hótaði maðurinn lögregluþjóni sem var að störfum að taka af honum lögreglukylfu og valda honum líkamsmeiðingum með henni. Maðurinn er þó ekki ákærður fyrir að hafa beitt lögreglumanninn ofbeldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert