Kóprabjalla og lirfur finnast  í hundafóðri

Kóprabjöllurnar og lirfurnar fundust í 10 kg sekkjum af Hill's …
Kóprabjöllurnar og lirfurnar fundust í 10 kg sekkjum af Hill's gæludýrafóðrinu Prescription Diet, Canine Z/D. Ljósmynd/Aðsend

Kóprabjalla og lirfur hafa fundist í innfluttu hundafóðri og vekur Matvælastofnun athygli á þessi á vef sínum. Um er að ræða kóprabjöllur (Necrobia rufibes) og lirfur þeirra, sem fundist hafa í tveimur lotum af  Hill's gæludýrafóðrinu Prescription Diet, Canine Z/D í 10 kg sekkjum (lotur nr. 11-2019 og 12-2019).

Hefur innflytjandinn Vistor hf.  innkallað þessar lotur í samráði við Matvælastofnun og er þeim viðskiptavinum sem hafa keypt hafa hundafóður úr umræddum bent á að þeir geti skilað því til þess dýralæknis sem fóðrið var keypt af eða í Suðurhraun 12a í Garðabæ á lager Distica.

Hafi hundaeigendur orðið varir við torkennilegar lirfur eða litlar bjöllur í hundafóðri hjá sér er þeim eindregið bent á að þrífa vel bæði fóðurílát sem og umhverfi þeirra. Einnig er mikilvægt að senda ábendingar til Matvælastofnunar og söluaðila fóðursins.

Bjöllurnar geta valdið skaða á heimilum, en hundum stafar þó ekki hætta af áti bjallnanna eða lirfa þeirra.

Vörumerki: Hills gæludýrafóður

Vöruheiti: Prescr. Diet, Canine Z/D 10 kg

Uppruni: Tékkland

Vörunúmer: 5341N

Nettómagn: 10 kg

Lotunúmer: 11-2019 og 12-2019

Framleiðandi: Hill's Pet Nutrition

Innflytjandi: Vistor hf. Hörgstún 2, Garðabæ

Dreifing: Dýralæknastofur um land allt

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert