Rannsókn á Landssímareit ekki lokið

Þarna á að rísa hótel á vegum Icelandair hótel.
Þarna á að rísa hótel á vegum Icelandair hótel. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjórn Félags fornleifafræðinga hefur sent Morgunblaðinu eftirfarandi athugasemd sem Sólrún Inga Traustadóttir, formaður félagsins, ritar undir:

„Stjórn Félags fornleifafræðinga undrast gagnrýni í fréttaflutningi Morgunblaðsins um aðgang að gögnum í vörslu stjórnanda fornleifarannsóknar á Landssímareitnum og hefði talið nærtækast að blaðið nýtti strax lögformlegar heimildir sínar til að fá þær upplýsingar sem það á rétt á hjá stjórnvöldum. Er engu líkara en blaðamaður hafi talið sig eiga heimtingu á vinnuskjölum og úrvinnslugögnum fornleifafræðings, s.s. ljósmyndum og gripum, löngu áður en rannsókninni er lokið.

Samkvæmt upplýsingum frá Minjastofnun Íslands er fornleifarannsókn á Landssímareit ekki formlega lokið og ekki hefur verið gerð krafa um skil á lokaskýrslu. Stjórn Félags fornleifafræðinga telur að fréttaflutningurinn beri keim af deilum um framtíð reitsins og er þar vegið ómaklega að félagsmanni.

Krefst greininga og túlkunar

Fornleifarannsókn krefst ítarlegra greininga og túlkunar á öllum þeim gögnum sem safnað er á vettvangi og henni telst ekki endanlega lokið fyrr en öllum gögnum og gripum hefur verið skilað til Þjóðminjasafns Íslands ásamt rannsóknarskýrslum til Minjastofnunar, sbr. 40. gr. laga um menningarminjar og reglur um veitingu leyfa til fornleifarannsókna nr. 339/2013.

Fyrir þá sem þekkja starfsumhverfi fornleifafræðinga ætti ekki að koma á óvart að aðstæður rannsókna sem farið er í vegna byggingaframkvæmda breytast í sífellu og fornleifafræðingar þurfa að aðlaga starfsumhverfi sitt samkvæmt því.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert