Kröfu Isavia hafnað af áfrýjunarnefnd

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins í dag, en Isavia hafði …
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins í dag, en Isavia hafði krafist þess að hún yrði felld úr gildi. mbl.is/Árni Sæberg

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins vegna gjaldtöku Isavia ohf. á ytri rútustæðunum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli, en bráðabirgðaákvörðunin var tekin 17. júlí síðastliðinn.

Ástæðan fyrir ákvörðuninni var sú að Samkeppniseftirlitið taldi sennilegt að Isavia hefði „misnotað markaðsráðandi stöðu sína með óhóflegri verðlagningu við gjaldtöku fyrir notkun á fjarstæðum“ og „mismunað viðskiptavinum í verðlagningu og skilmálum“.

Þá taldi Samkeppniseftirlitið að bið eftir endanlegri ákvörðun gæti skaðað samkeppni og haft veruleg skaðleg áhrif á rekstur fyrirtækja sem nýta þurfi fjarstæðin, en bráðabirgðaákvörðunin er í gildi til ársloka.

Isavia lýsti sig ósammála þessari ákvörðun og taldi óeðlilegt að Samkeppniseftirlitið stöðvaði gjaldtöku fyrir einn af af þjónustuþáttunum á Keflavíkurflugvelli. Fyrirtækið krafðist þess að áfrýjunarnefndin felldi bráðabirgðaákvörðunina úr gildi.

Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu kemur fram að með úrskurði sínum í dag hafi áfrýjunarnefnd hafnað þessari kröfu Isavia og meðal annars byggt niðurstöðu sína á því að Isavia sé í einokunarstöðu og samkeppnislög geri mjög ríkar kröfur til slíkra fyrirtækja.

„Telur áfrýjunarnefnd að undirbúningur Isavia að gjaldtökunni hafi verið óvandaður og fyrirtækið ekki gert viðhlítandi grein fyrir kostnaði við að veita þjónustu við fjarstæðin. Sennilegt sé að gjaldataka Isavia sé óhófleg og ólögmæt og brýnt hafi verið bregðast við henni,“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins vegna málsins.

Úrskurð áfrýjunarnefndarinnar má finna hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert