Miklar götulokanir vegna kvennafrís

Frá kvennafríi árið 2016.
Frá kvennafríi árið 2016. mbl.is/Árni Sæberg

Miklar götulokanir verða í miðborginni á kvennafrídegi miðvikudaginn 24. október. Lokanir verða á Kalkofnsvegi og víðar vegna baráttufundar á Arnarhóli í tilefni af samkomunni, en sviði verður komið fyrir á Kalkofnsvegi fyrir framan Arnarhól og hefst uppsetning sviðsins klukkan 09:00 að morgni miðvikudags og verður þá akreinum í báðar áttir lokað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Í tilkynningunni eru allar konur auk þess hvattar til að leggja niður störf klukkan 14:55 þennan dag. Dagskrá hefst við Arnarhól klukkan 15:30 og gert er ráð fyrir að viðburðurinn vari í um eina klukkustund. Áætlað er að miklar takmarkanir verði í miðborginni frá klukkan 15:00 og þar til formlegri dagskrá lýkur. Er ökumönnum ráðlagt að forðast að keyra um miðborgina á þessum tíma. Kalkofnsvegur verður lokaður áfram þar til sviðið hefur verið tekið niður á ný en þó ekki lengur en til klukkan 21:00.

Bílastæðum á móts við Skúlagötu 4, sem hýsir atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, verður lokað þennan dag og þau nýtt fyrir hreyfihamlaða meðan á dagskránni stendur. Rútum verður beint á rútustæði við Hörpu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert