Ung kona fannst látin á heimili sínu á Akureyri á sunnudagsmorgun. Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar málið, en rannsóknin beinist að því að upplýsa um hvenær og hvernig andlátið átti sér stað. Dánarorsök liggur ekki fyrir.
Einn maður var handtekinn vegna málsins og var hann í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 26. október næstkomandi, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.
Maðurinn er talinn hafa verið á vettvangi þegar konan lést, samkvæmt tilkynningu lögreglunnar, sem segist ekki geta gefið frekari upplýsingar um málið að sinni.