17 ára á 161 km hraða

Frá Reykjanesbraut.
Frá Reykjanesbraut. mbl.is/RAX

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á síðustu dögum kært ellefu ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók var sautján ára piltur og mældist bifreið hans á 161 km/klst. hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Hann þarf að greiða 240 þúsund króna fjársekt og sæta sviptingu ökuleyfis í þrjá mánuði, auk þriggja refsipunkta í ökuferilsskrá. Í ljósi ungs aldurs hans hafði lögregla samband við aðstandendur hans.

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af nokkrum bifreiðum vegna vanrækslu eigenda varðandi skoðunar- og tryggingarmál og einn ökumaður var tekinn úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert