Í gær var brotist inn í Apótek Suðurnesja og þaðan stolið miklu magni lyfja. Aðallega var um að ræða ýmsar tegundir verkjalyfja og annarra ávanabindandi lyfja og er andvirði þess sem stolið var áætlað á fjórða hundrað þúsund krónur.
Lögreglan á Suðurnesjum segir að brotin hafi verið upp festing í glugga og þannig hafi innbrotsþjófurinn komist inn.
Í gær var einnig tilkynnt um innbrot í bát í Njarðvíkurhöfn. Úr lyfjakistu í honum var stolið morfíni og sterkum verkjalyfjum.
Lögreglan rannsakar bæði málin.