Leggja til friðlýsingu tveggja vatnasviða

Stór hluti Laugavegarins á Fjallabaki er innan vatnasviðs Markarfljóts.
Stór hluti Laugavegarins á Fjallabaki er innan vatnasviðs Markarfljóts.

Umhverfisstofnun hefur lagt fram til kynningar tillögur að friðlýsingu vatnasviða Jökulsár á Fjöllum í Þingeyjarsýslu og Markarfljóts í Rangárvallasýslu á grundvelli flokkunar svæðanna í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar.

Lagt er til að verndarsvæði vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum verði ofan stíflumannvirkja fyrrum fyrirhugaðrar Arnardalsvirkjunar og meginfarvegur árinnar þar fyrir neðan til sjávar, en fyrirhuguð Helmingsvirkjun er innan vatnasviðs Arnardalsvirkjunar.

Lagt er til að verndarsvæði vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum verði …
Lagt er til að verndarsvæði vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum verði ofan stíflumannvirkja fyrrum fyrirhugaðrar Arnardalsvirkjunar. Kort/UST

Tillaga að verndarsvæði Markarfljótsvirkjunar er vatnasvið Markarfljóts ofan stíflumannvirkja fyrrum fyrirhugaðrar Markarfljótsvirkjunar B og meginfarvegur Markarfljóts til sjávar þar fyrir neðan. Fyrirhuguð Markarfljótsvirkjun A er innan vatnasviðs Markarfljótsvirkjunar B.

Faghópur 1 í 2. áfanga rammaáætlunar skilgreindi áhrifasvæði virkjunar svo: „Svæði sem til greina koma vegna vatnsaflsvirkjana voru afmörkuð þannig að miðað var við vatnasvið ofan fyrirhugaðra stíflumannvirkja en þar fyrir neðan var aðeins tekinn meginfarvegurinn og næsta nágrenni hans (100-500 m út frá miðlínu eftir aðstæðum…).“

Frestur til að skila inn athugasemdum vegna tillagnanna er til og með 23. janúar 2019. Að kynningartíma loknum tekur Umhverfisstofnun saman umsögn um framkomnar athugasemdir við tillöguna og vísar tillögu að friðlýsingarskilmálum til ráðherra.

Tillaga að verndarsvæði Markarfljótsvirkjunar er vatnasvið Markarfljóts ofan stíflumannvikja fyrrum …
Tillaga að verndarsvæði Markarfljótsvirkjunar er vatnasvið Markarfljóts ofan stíflumannvikja fyrrum fyrirhugaðrar Markarfljótsvirkjunar B. Kort/UST
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert