Vélarvana norður af Húnaflóa

Lóðsinn í Eyjum.
Lóðsinn í Eyjum. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Björgunarbátur er á leiðinni til þess að aðstoða áhöfn vélarvana báts norður af Húnaflóa. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er engin hætta á ferðum.

Í nótt fylgdi lóðsinn í Vestmannaeyjum öðrum bát til hafnar en sá varð vélarvana á milli Eyja og lands. Áhöfn hans tókst hins vegar að ræsa vélina að nýju og sigldi því fyrir eigin vélarafli til hafnar í Vestmannaeyjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert