Ræddu stöðuna í þýskum stjórnmálum

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands, Angela Merkel, kanslari Þýskalands, Kolinda Grabar-Kitarović, …
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands, Angela Merkel, kanslari Þýskalands, Kolinda Grabar-Kitarović, forseti Króatíu, og Ana Brnabić, forsætisráðherra Serbíu. Ljósmynd/Stjórnarráð Íslands

Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra sat kvöldverð með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, í Berlín í gær. Merkel ávarpaði þar gesti alþjóðlegrar ráðstefnu um efnahagsmál á vegum Süddeutsche Zeitung.

Að loknum kvöldverði fundaði Katrín með Merkel þar sem þær ræddu meðal annars stöðuna í þýskum stjórnmálum og EES-samstarfið.

Katrín flutti ávarp á ráðstefnunni ásamt Jüri Ratas, for­sæt­is­ráðherra Eist­lands, og Ana Brna­bić, for­sæt­is­ráðherra Serbíu.

Forsætisráðherra fjallaði um þær tækniframfarir sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir og þróunina á Íslandi í þeim málum. Sérstaklega ræddi hún stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla rafræna stjórnsýslu og aukinn stuðning við nýsköpun og þróun.

Þá reifaði hún áhrif tæknibreytinga á menntakerfið og á lýðræðislega umræðu. Hún lagði áherslu á að marka þyrfti stefnu með almannahagsmuni að leiðarljósi í því skyni að tryggja að tæknin nýtist til að styrkja lýðræði, sjálfbærni og jöfnuð, fremur en hið gagnstæða. 

Í kjölfarið tók Katrín þátt í pallborðsumræðum ásamt Ratas og Brnabić sem Wolfgang Krach, aðalritstjóri Süddeutsche Zeitung, stýrði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert