Tíð innbrot í bifreiðar á höfuðborgarsvæðinu

Innbrot í bíla hafa verið umtalsverð síðan í byrjun október.
Innbrot í bíla hafa verið umtalsverð síðan í byrjun október. mbl.is/Rósa Braga

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið tilkynningar um rúmlega hundrað innbrot í ökutæki frá því 1. október. Um það bil helmingur þessara innbrota hefur átt sér stað í miðborginni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu.

Er brýnt fyrir eigendum og umráðamönnum að ganga tryggilega frá ökutækjum sínum og geyma engin verðmæti í þeim. Einnig er gott að huga að því að leggja bifreiðum í stæðum sem eru með góðri lýsingu sé möguleiki á því. Ökutæki lagt í myrki er auðveldari bráð fyrir þjófa, segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert