Frekar verkfall en 4% launahækkun

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, undirritar fréttatilkynningu félagsins þar sem …
Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, undirritar fréttatilkynningu félagsins þar sem skorað er á stjórnvöld að halda aftur af hækkunum gjalda. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson

„Það er alveg ljóst að í þeim kjaraviðræðum sem fram undan eru mun  íslenskt verkafólk fremur velja harða kjarabaráttu og jafnvel vinnustöðvanir en að þiggja að hámarki 4% launahækkun í þriggja ára samningi, eins og Samtök atvinnulífsins hafa talað fyrir,“ segir í fréttatilkynningu frá Framsýn, stéttarfélagi Þingeyinga.

Jafnframt er skorað á stjórnvöld að halda aftur af hækkun opinberra gjalda og er í því samhengi vísað til þjónustugjalda fyrir almenna þjónustu og heilbrigðisþjónustu, ásamt skatta á eldsneyti.

„Þá vega gjaldskrárhækkanir eins og  hækkanir á fasteignagjöldum almennt þungt í vasa verkafólks sem býr við það hlutskipti að vera á lágmarkslaunum,“ segir í tilkynningunni.

Miklar væntingar

Fram kemur að félagið telur eðlilegt að væntingar almenns launafólks séu miklar, „ekki síst í ljósi ofurhækkana til einstakra hópa s.s. forstjóra, þingmanna og ráðamanna, þeirra sem reglulega vara við launahækkunum til þeirra sem búa við lökustu kjörin.“

Bendir Framsýn á að samkvæmt launatöflu Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins eru föst mánaðarlaun verkafólks á bilinu  266.735 upp í 300.680 krónur.

Þá er spurt hvort þeir „sem vilja láta taka sig alvarlega talað gegn launahækkunum til fólks sem starfar eftir kjarasamningum Starfsgreinasambands Íslands og Landssambands íslenskra verslunarmanna?“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert