Fólksbifreið hvolfdi við Arnarnesveg í Kópavogi á sjöunda tímanum í dag er hún skall á annarri. Þrír slösuðust og viðbúnaður viðbragðsaðila er nokkur, en tilkynning um slysið barst um kl. 18.20.
Þrír sjúkrabílar fóru á vettvang og einn slökkviliðsbíll. Slys á fólki eru minni háttar, að því er virðist í fyrstu. Tildrög slyssins eru ekki ljós.