Þriggja bíla árekstur á Vesturlandsvegi

Frá aðgerðum slökkviliðs og lögreglu á vettvangi í dag.
Frá aðgerðum slökkviliðs og lögreglu á vettvangi í dag. mbl.is/​Hari

Þriggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi til móts við Grjótháls rétt fyrir klukkan tvö í dag. Nokkrar tafir hafa orðið á umferð vegna slyssins.

mbl.is/​Hari

Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru þrír fluttir á slysadeild eftir áreksturinn en meiðsli fólksins eru ekki talin alvarleg.

Tveir dælubílar og þrír sjúkrabílar voru sendir á vettvang. Lögreglan hefur lokað hluta af veginum á meðan sjúkraliðar og slökkvilið athafna sig.

mbl.is/​Hari
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert