Ræddi við íþróttaiðkendur í Kópavogi

Bæjarstjórinn lætur skotið ríða af.
Bæjarstjórinn lætur skotið ríða af. mbl.is/Árni Sæberg

Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, ræddi í dag við unga íþróttaiðkendur í HK og Breiðabliki. Heimsóknin var hluti af innleiðingu á verkefninu TUFF-Ísland í Kópavogi.

TUFF-Ísland notar íþróttir og tómstundir til þess að kenna börnum samfélagsleg gildi og brúa menningarlegt bil milli barna af ólíkum uppruna, að því er segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Bæjarstjóri sótti HK í Kórnum heim og svo Breiðablik í Fífunni. Að lokinni stuttri kynningu þar sem lögð var áhersla á mikilvægi þess að gera sitt besta, taka þátt og hafa gaman fór bæjarstjóri í fótbolta með hópnum. Undanfarið hefur TUFF verið kynnt í skólum Kópavogs, bæði fyrir nemendum og kennurum, auk þess sem íþróttaþjálfarar hafa hlotið námskeið um verkefnið.

Börnin voru hvött til að taka skólafélaga sem ekki eru í íþróttum með á næstu æfingu en í tengslum við innleiðingu á TUFF er öllum börnum í Kópavogi sem ekki hafa áður tekið þátt í skipulögðu íþróttastarfi boðið að taka þátt sér að kostnaðarlausu í þrjá mánuði hjá félögum sem taka þátt í verkefninu.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er verndari TUFF-Ísland.

TUFF-Ísland er verkefni sem notar íþróttir og tómstundir til þess að kenna börnum mikilvæg samfélagsleg gildi, viðurkenndar leikreglur samfélagsins og brúa menningarlegt bil milli barna af fjölbreyttum uppruna. Áhersla er lögð á umburðarlyndi, samkennd og gagnkvæma virðingu, óháð uppruna, þjóðerni, tungumáli og trúarbrögðum.

Þetta er forvarnarverkefni sem miðar að því að öll börn, burtséð frá bakgrunni eða uppruna, upplifi sig sem hluta af heild. Það gerir þau sterkari einstaklinga í samfélaginu, tryggir betri árangur þeirra í námi og gefur þeim mikilvægan grunn fyrir framtíðina, að því er segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert