Allt að tíu stiga frost í nótt

Kort/Veðurstofa Íslands

Spáð er allt að tíu stiga frosti í innsveitum á Norðausturlandi í nótt en gert er ráð fyrir að þar verði heiðskírt. Ekki er spáð frosti með suðurströndinni, samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

„Hæg austlæg átt, víða skýjað og dálítil væta af og til, en þurrt og yfirleitt bjart á Norður- og Austurlandi. Snýst í norðan 8-13 norðvestan til á landinu, og á Snæfells- og Reykjanesi, með rigningu í kvöld en hægari vindur og úrkomulítið annars staðar. Hiti víða 1 til 6 stig, en þar sem er heiðskírt norðaustan til á landinu frystir og má búast við 10 stiga frosti þar í innsveitum í nótt.

Hæg austlæg átt, léttskýjað og kólnar á morgun. Frost 2 til 10 stig annað kvöld, svalast í innsveitum norðanlands, en það hangir þó frostlaust með suðurströndinni,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spáin fyrir næstu daga

Austlæg átt 3-8 m/s og léttskýjað á Norður- og Austurlandi, en skýjað með köflum og sums staðar smáskúrir sunnan- og vestanlands. Norðlæg átt 8-13 og dálítil rigning um landið norðvestanvert í kvöld, annars hægari. Hiti 0 til 6 stig en frost 0 til 6 stig norðaustan til. Hæg austlæg eða breytileg átt á morgun og léttskýjað, en stöku skúrir suðaustanlands. Kólnar heldur.

Hæg norðaustlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum. Yfirleitt þurrt um sunnanvert landið og hiti allt að 6 stigum syðst, en frost 0 til 5 stig norðan til á landinu. 

Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Hæg breytileg átt og léttskýjað. Frost 3 til 8 stig í innsveitum fyrir norðan, annars í kringum frostmark og allt að 6 stiga hiti með suður- og vesturströndinni. 

Á mánudag:
Gengur í strekkingssuðaustanátt með rigningu sunnan og vestan til á landinu. Hiti 0 til 6 stig. Hægari vindur, þurrt og bjart norðaustanlands og frost 0 til 6 stig. 

Á þriðjudag:
Útlit fyrir austanátt með rigningu suðaustan til en með snjókomu um landið norðaustanvert. Þurrt og víða bjart vestanlands. Hiti kringum frostmark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert