Lakari eldvarnir hjá ungu fólki

Tíu prósent svarenda 25 til 34 ára hafa engan reykskynjara …
Tíu prósent svarenda 25 til 34 ára hafa engan reykskynjara á heimilinu. mbl.is/Eggert

Fólk á aldrinum 25 til 34 ára stendur öðrum langt að baki þegar kemur að eldvörnum á heimilinu, samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og Eldvarnabandalagið.

Hvort sem litið er til fjölda reykskynjara eða slökkvibúnaðar stendur þessi hópur mun lakar að vígi en aðrir. Könnunin er kynnt í tilefni þess að Eldvarnaátak LSS hefst á morgun og stendur fram í aðventubyrjun, að því er segir í tilkynningu.

Tíu prósent svarenda á aldrinum 25 til 34 ára hafa engan reykskynjara og önnur 24 prósent aðeins einn, samkvæmt könnun Gallup. Hlutfall þeirra sem hafa engan reykskynjara er mun lægra í öðrum aldurshópum, allt niður í þrjú prósent.

Sömu sögu er að segja þegar litið er til slökkvitækja og eldvarnateppa á heimilum. Fólk á aldrinum 25-34 ára er mun ólíklegra til að hafa slíkan búnað á heimilinu en aðrir. Þannig segjast aðeins 49 prósent unga fólksins eiga eldvarnateppi en þetta hlutfall er allt að 66 prósent í öðrum aldurshópum og yfir 60 prósent að meðaltali.

Dregið hefur saman með leigjendum og þeim sem búa í eigin húsnæði hvað varðar slökkvitækjaeign miðað við fyrri kannanir enda hefur nú verið bundið í lög að slökkvitæki skuli vera í leiguhúsnæði.

Helstu niðurstöður könnunar Gallup:

  • Á um helmingi heimila eru allt í senn reykskynjarar, slökkvitæki og eldvarnateppi.
  • Á 24 prósent heimila er enginn eða aðeins einn reykskynjari (38,4 prósent 2006).
  • Heimilum með fjóra reykskynjara eða fleiri hefur á sama tíma fjölgað úr 21,5 prósent árið 2006 í 33,3 prósent nú.
  • Slökkvitæki eru á um 74 prósentum heimila og hefur þetta hlutfall aldrei mælst hærra.
  • Eldvarnir eru að jafnaði öflugastar hjá þeim sem búa í einbýli en lakastar hjá þeim sem búa í fjölbýli.

Fræða börn í 3. bekk um eldvarnir

Eldvarnarátaki LSS verður ýtt úr vör í Lækjarskóla í Hafnarfirði kl. 10.30 á morgun. Í kjölfarið heimsækja slökkviliðsmenn um allt land börn í 3. bekk grunnskóla landsins og fræða þau um grunnatriði eldvarna nú í aðdraganda aðventunnar. Þeir gera börnunum grein fyrir aukinni eldhættu á aðventunni vegna mikillar notkunar kerta- og rafmagnsljósa og brýna fyrir þeim mikilvægi þess að nauðsynlegur eldvarnabúnaður sé á hverju heimili. Þá er átt við reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi. Börnin eru einnig minnt á neyðarnúmerið 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert