Bílvelta varð á gatnamótum Ármúla og Háaleitisbrautar, í nágrenni Samgöngustofu, um níuleytið í morgun. Tveir sjúkrabílar og lögregla voru kölluð á staðinn.
Betur fór þó en á horfðist að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu og reyndust þeir sem í bílnum voru hafa sloppið ómeiddir frá veltunni.