Lá ofurölvi á gangstétt við bar

Nokkuð var um það í gærkvöld og nótt að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þyrfti að hafa afskipti af ofurölvuðu fólki.

Þannig var ofurölvaður maður handtekinn á veitingahúsi í miðborginni í nótt, en maðurinn var, að sögn þeirra sem tilkynntu um hann, að ráðast á fólk. Fær hann að sofa úr sér í fangageymslum lögreglunnar.

Þá hafði lögregla afskipti af ofurölvaðri konu þar sem hún lá á gangstétt við bar í Bústaða- og Háaleitishverfi um hálfþrjúleytið í nótt. Reyndu lögreglumenn að koma konunni heim til sín, en það tókst ekki og fær hún því að sofa úr sér í fangageymslum lögreglu.

Loks var lögreglu tilkynnt um ofurölvi mann sem var til vandræða á veitingastað í Breiðholti á öðrum tímanum í nótt. Var hann einnig vistaður í fangageymslum lögreglu í nótt sökum ástands síns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert