Siðfræðistofnun veitir stjórnvöldum ráðgjöf

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Vilhjálmur Árnason, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar, við undirritun samningsins í gær. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Siðfræðistofnun verður stjórnvöldum til ráðgjafar í siðfræðilegum efnum næstu tvö ár. Samstarfssamningur þess efnis var undirritaður í gær af Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Jón Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, og Vilhjálmi Árnasyni, stjórnarformanni Siðfræðistofnunar.

Í frétt á vef Stjórnarráðsins kemur fram að samningurinn nær yfir tímabilið 1. janúar 2019 til 31. desember 2021. Siðfræðistofnun, sem rannsóknarstofnun innan vébanda Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands, mun vinna með stjórnvöldum að eftirfylgni og innleiðingu tilmæla í skýrslu starfshóps forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu, sem var birt í september sl.

Samkvæmt samningnum getur hvert ráðuneyti einnig óskað eftir ráðgjöf Siðfræðistofnunar um einstök mál á sínu málefnasviði, þar með talið um fyrirhugaða lagasetningu. Þá geta Alþingi og stofnanir þess óskað eftir ráðgjöf Siðfræðistofnunar. Greiðslur úr ríkissjóði fyrir verkið munu nema 10 milljónum króna árlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert