Gæsluvarðhald yfir konu á áttræðisaldri, sem grunuð er um tilraun til manndráps með því að hafa stungið tengdason sinn með hnífi, hefur verið framlengt til 9. janúar. Þetta fékk mbl.is staðfest hjá lögreglunni á Vesturlandi.
Konan hefur verið í haldi lögreglu frá því að málið kom upp 10. nóvember og var upphaflega úrskurðuð í gæsluvarðhald til 16. desember.
Meint brot konunnar varðar allt að ævilöngu fangelsi. Tengdasonur konunnar hafði gert athugasemd við að hún hafi sinnt barnabarni sínu mjög ölvuð og óskað eftir aðstoð lögreglu eftir að barnið hafði hringt í föður sinn og kvartað yfir ölvun ömmu sinnar.
Eftir að barnið og tengdasonurinn voru sofnuð mun konan hafa komið inn í herbergi tengdasonarins og sakað hann um að hafa kallað lögreglu á vettvang. Hann hafi ætlað að koma henni út úr herberginu en þá fundið fyrir stungu og byrjað að blæða.
Konan hefur neitað sök en frásögn hennar þykir óljós og ófullkomin og stangast á við annað sem komið hafi fram við rannsókn málsins. Hún er enn fremur grunuð um að hafa verið farin að hreinsa vettvang af sönnunargögnum og reynt að koma í veg fyrir að tengdasonurinn kæmist á brott.