Valgerður Sveinsdóttir var kjörin varamaður í bankaráð Seðlabanka Íslands á Alþingi í dag. Hún kemur í stað Vilborgar G. Hansen sem sagði sig úr Miðflokknum og bankaráði í kjölfar ummæla þingmanna Miðflokksins á Klaustri 20. nóvember.
Vilborg greinir frá úrsögn sinni á Facebook 29. nóvember, en hún sendi bréf þess efnis bæði á Gylfa Magnússon, formann bankaráðs, og Steingrím J. Sigfússon, forseta Alþingis.
„Ég undirrituð segi mig hér með úr varamannsku [sic] í bankaráðs [sic] Seðlabanka þar sem mér er ómögulegt að styðja lengur þann flokk sem ég sit í umboði fyrir eftir fréttir gærdagsins í Dv og Stundinni,“ kom meðal annars fram í færslu Vilborgar.