Fer langleiðina í 50 metra á sekúndu

Kort/Veðurstofa Íslands

Spáð er miklu hvassviðri í dag og undir kvöld verður kominn austanstormur eða -rok allra syðst á landinu og gætu hviður farið langleiðina upp undir 50 m/s á þeim slóðum. Annars staðar verður þetta meira 15-23 og hviður að 35-40 m/s sem er eitthvað sem flestir eru orðnir allvanir eftir lægðir undangenginna vikna, samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

„Talsverð rigning á Suðausturlandi og Austfjörðum en lægir mikið í nótt. Dregur úr úrkomu á morgun nema að áfram rignir austan til fram á kvöld á morgun. 
Síðan er útlit fyrir nokkra fremur hæga og úrkomulitla daga en þegar vind lægir á þessum árstíma styttist hratt í að hitastigið falli undir frostmark og því gætu hálkublettir myndast,“ segir í enn fremur í hugleiðingum veðurfræðings.

Spáð er áframhaldandi rigningu og vatnavöxtum í ám á Austfjörðum og auknum líkum á aurskriðum og krapaflóðum. Í dag gengur í austanstorm á sunnanverðu landinu og hvassast verður í Mýrdal, undir Eyjafjöllum, í Fljótshlíð og Landeyjum.

Veðurspá fyrir næstu daga

Hvessir í dag, austan 15-23 m/s með rigningu síðdegis, en 23-28 um tíma syðst. Talsverð rigning SA-lands og á Austfjörðum og dregur úr vindi seint um kvöldið. Hiti 1 til 9 stig, mildast syðst.
Lægir mikið í nótt, austlæg átt, 5-13, á morgun. Skúrir sunnan til, rigning um landið A-vert fram á kvöld, en annars úrkomulítið. Hiti 2 til 7 stig, mildast sunnan- og SA-lands.

Á þriðjudag:

Austlæg átt, 3-10 m/s og víða þurrt, en 10-15 og talsverð væta austast. Hægari og úrkomuminna A-til seint um kvöldið. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst. 

Á miðvikudag:
Austlæg átt, 3-10 m/s, hvassast syðst. Rigning SA-til en annars þurrt að kalla. Hiti breytist lítið. 

Á fimmtudag:
Hæg austlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og stöku él A-til. Allvíða frostlaust við sjávarsíðuna, en annars 1 til 8 stiga frost. 

Á föstudag, laugardag og sunnudag (Þorláksmessu):
Útlit fyrir norðaustangolu eða -kalda með smá vætu og mildu veðri við SA-ströndina, en annars hægari, úrkomulítið og hiti um og undir frostmarki.

Færð og aðstæður

Vesturland: Hálka eða hálkublettir eru víða. Hálka er á Holtavörðuheiði.

Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir víðast hvar og þoka er á Þröskuldum. Þæfingsfærð er á Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðum.

Norðurland: Hálka er á öllum helstu leiðum en hálkublettir á útvegum.

Norðausturland: Hálka eða hálkublettir á flestum leiðum.

Austurland: Hálka eða hálkublettir eru nokkuð víða en greiðfært með ströndinni frá Reyðarfirði og suður úr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert