Matvælastofnun hvetur landsmenn til að tileinka sér hreinlæti, rétta meðhöndlun og kælingu matvæla í eldhúsinu svo koma megi í veg fyrir að matarbornir sjúkdómar spilli jólagleðinni.
Þetta kemur fram í pistli sem er að finna á vef MAST undir yfirskriftinni „Eyðum ekki jólunum á klósettinu“.
Bent er á að, mikið álag sé á eldhúsum landsmanna við jólaundirbúning í desember og yfir hátíðirnar. Hreinlæti, kæling og rétt hitun matvæla er afar mikilvæg svo koma megi í veg fyrir að gestir og heimilisfólk fái matarborna sjúkdóma með tilheyrandi óþægindum.
„Sjúkdómsvaldandi bakteríur geta borist inn í eldhúsið með kjöti og jarðvegi sem fylgir grænmeti og borist þaðan í önnur matvæli á eldhúsborðinu eða í ísskápnum. Einnig geta þær borist í matvæli frá þeim sem meðhöndlar matvælin og frá þeim búnaði og áhöldum sem eru notuð í eldhúsinu.
Nóróveirur geta dreift sér hratt á jólunum og mikilvægt að einstaklingar með einkenni matarborna sjúkdóma haldi sig frá matargerð. Reglulegur handþvottur minnkar líkur á smiti milli aðila eða frá menguðum matvælum,“ segir MAST.
Höfum í huga að: