Hafnar því að hafa beitt Sigrúnu áreitni

Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.
Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna uppsagnar Sigrúnar Helgu Lund, pró­fess­ors í líf­töl­fræði við Há­skóla Íslands.

Sigurður Yngvi hafnar því að hafa beitt Sigrúnu andlegu ofbeldi eða áreitni af neinu tagi, en Sigrún sagði starfi sínu lausu þar sem hún taldi fullreynt að fá viðbrögð frá stjórnendum skólans við erfiðum samskiptum og kynferðislegri áreitni sem hún sagðist hafa mátt þola af yfirmanni sínum, Sigurði Yngva, í rúmlega tvö ár. Sigrún birti færslu á Facebook í morgun þar sem hún rekur málið og greinir frá uppsögn sinni.

Sigurður Yngvi vísar í úrskurð siðanefndar sem tók málið til umfjöllunar þar sem fram kemur að niðurstaða nefndarinnar er að ekki sé um brot að ræða að hluta, en brot að hluta auk brots á jafnræðisreglu og taldi nefndin brotið ekki alvarlegt.

Yfirlýsingu Sigurðar Yngva í heild sinni má lesa hér að neðan:

Fram til þessa hef ég ekki viljað tjá mig opinberlega um samstarf mitt við Sigrúnu og ástæður þess að því samstarfi lauk. Í ljósi ásakana í minn garð sem hún hefur sett fram á samfélagsmiðlum og fjölmiðlar hafa sagt frá vil ég koma eftirfarandi á framfæri.

Ég hafna því eindregið að hafa beitt hana andlegu ofbeldi eða áreitni af neinu tagi. Eftir farsælt samstarf komu upp erfiðleikar á milli okkar, og ég neyddist á endanum til að víkja henni úr rannsóknahóp mínum. Í kjölfarið gerði hún sig seka um tilefnislausa líkamsárás á skrifstofu minni í vitna viðurvist og hafði í hótunum við mig. Sá atburður var mér og öðru samstarfsfólki okkar mikið áfall.

Siðanefnd Háskóla Íslands tók málið til umfjöllunar að kröfu Sigrúnar. Siðanefndin gaf út ákvörðun sína í málinu 9. júlí 2018 og eru ákvörðunarorð hennar eftirfarandi:

„Siðanefnd Háskóla Íslands vísar frá þeim kæruatriðum sem fjallað er um undir liðum 1 og 2 þar sem kæran telst í þessum tilvikum hafa verið tilefnislaus, sbr. 4. gr. starfsreglna siðanefndar. Í lið 3 er fjallað um greinar 1.3.1 og 1.3.4., í siðareglum Háskóla Íslands. Niðurstaða nefndarinnar er að ekki sé um brot að ræða að hluta, en brot að hluta auk brots á jafnræðisreglu 1.3.2. Brotið telst ekki alvarlegt. Þá er hluta þessa liðar vísað frá vegna skorts á upplýsingum, sbr. 9. gr. starfsreglna nefndarinnar. Liðum 4 og 5 er vísað frá þar sem málsgrundvöllur er ekki til staðar, sbr. 9. gr. starfsreglna nefndarinnar.“

Eins og sést af ákvörðunarorðum nefndarinnar er öllum kæruatriðum hafnað eða vísað frá nema einu kæruatriði sem varðaði breytingu á skipan stýrihóps, sem fól í sér að Sigrún fór úr honum, sem siðanefndin taldi þó ekki alvarlegt, og var Sigrún tekin aftur inn í stýrihópinn síðar. Öllum ásökunum um áreitni var því hafnað enda enginn fótur fyrir slíkum ásökunum.

Mér þykir leitt að Sigrún kjósi að fara fram með rangar ásakanir í minn garð en óska henni alls hins besta.

Virðingarfyllst,

Sigurður Yngvi Kristinsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert