Söfnun slökkviliðsmanna fyrir Frú Ragnheiði í Kringlunni gengur vonum framar. Fljótlega varð ljóst að það myndi takast að safna fyrir æðaleitartæki um borð í bílinn sem bætir öryggi hjá sprautufíklum. Þá var markmiðið hækkað upp í milljón en nú hefur takmarkið verið hækkað enn frekar.
Forláta róðrarvél sem Hreysti gefur til styrktar málefnisins verður boðin upp í söfnuninni klukkan fjögur á föstudag en fjármagnið nýtist Frú Ragnheiði vel að sögn Helgu Sifjar Friðjónsdóttur, sem er formaður Frú Laufeyjar, félags um skaðaminnkun.
mbl.is kom við í Under Armour versluninni í Kringlunni í dag þar sem slökkviliðsfólk rær nú allan sólarhringinn. Í myndskeiðinu er rætt við Birnu Björnsdóttur, slökkviliðskonu, sem var að klára róður í hádeginu og reri einnig klukkan fjögur í nótt. Hún segir svefnleysi vera farið að segja til sín en að gott sé að finna stuðninginn frá fólki. Þá er rætt við Helgu Sif sem einnig var á staðnum.
Hér fyrir neðan má sjá myndskeið sem mbl.is gerði um sjúkrabílinn Frú Ragnheiði fyrir nokkrum árum síðan. Verkefnið miðar að því að draga úr skaðasemi lifnaðarhátta hjá jaðarhópum meðal annars með því að draga úr útbreiðslu á sjúkdómum á borð við lifrarbólgu C og HIV. Hugmyndin er að draga úr þörf á dýrari úrræðum fyrir þessa hópa innan heilbrigðiskerfisins.