Engin rútustæði í Hafnarfirði

Rútustæði vantar í Hafnarfirði, að mati Ferðamálasamtaka bæjarins.
Rútustæði vantar í Hafnarfirði, að mati Ferðamálasamtaka bæjarins. mbl.is/Eggert

Skipulags- og byggingaráð hefur vísað erindi Ferðamálasamtaka Hafnarfjarðar um rútustæði í miðbæ Hafnarfjarðar til vinnslu miðbæjarskipulags.

Áskorun samtakanna frá 14. nóvember í fyrra var vísað til skipulags- og byggingaráðs frá menningar- og ferðamálanefnd. Ráðið tekur undir mikilvægi þess sem þar kemur fram.

„Í miðbæ Hafnarfjarðar vantar alveg rútustæði. Þar eru vissulega stoppistöðvar þar sem farþegar geta farið úr og í rúturnar. Það er hins vegar mikilvægt að bæta úr því að hafa rútustæði þannig að rútur geti beðið á meðan farþegarnir skoði miðbæ Hafnarfjarðar, fái sér að borða og versli af þeim fjölmörgu verslunum sem eru þar,“ segir í áskoruninni.

Skipulags- og byggingaráð felur skipulagsfulltrúa að vinna að bráðabirgðalausn á vandanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert