Mynduðu ökumenn við Reykjanesbraut

8% ökumanna keyrðu of hratt, en sá sem hraðast ók …
8% ökumanna keyrðu of hratt, en sá sem hraðast ók var á 121 kílómetra hraða á klukkustund. mbl.is/Eggert

Lögregla myndaði í dag brot 31 ökumanns á Reykjanesbraut í Hafnarfirði, en lögregla fylgdist með ökutækjum sem óku Reykjanesbraut í norðurátt, til móts við Brunnhóla.

Fram kemur á vef lögreglu að 404 ökutæki hafi farið þessa leið á einni klukkustund fyrir hádegi og þar af hafi 8% ekið of hratt, eða yfir afskiptahraða.

„Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst. en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 121,“ segir í tilkynningu á vef lögreglu, sem segir vöktunina hafa verið lið í umferðareftirliti á höfuðborgarsvæðinu og tekur sérstaklega fram að sól og þurrt hafi verið meðan á hraðamælingunni stóð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert