Aukinn stuðningur við ríkisstjórnina

Alþingishúsið.
Alþingishúsið. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 22,2% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 4. til 14. janúar.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins hélst nær óbreytt frá síðustu mælingu sem lauk 11. desember. Samfylkingin mældist með 15,0% fylgi, sem er tæplega tveimur prósentustigum minna en flokkurinn mældist með í síðustu könnun, að því er kemur fram í tilkynningu frá MMR.

Þá minnkaði fylgi Vinstri grænna um rúmlega eitt og hálft prósentustig, fylgi Miðflokksins jókst um eitt prósentustig og fylgi Flokks fólksins jókst um tvö og hálft prósentustig frá síðustu mælingum.

Stuðningur við ríkisstjórnina jókst lítillega en 41,1% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 40,3% í síðustu mælingu.

Fylgi Pírata mældist nú 13,8% og mældist 14,4% í síðustu könnun.

Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 11,7% og mældist 12,5% í síðustu könnun.

Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,3% og mældist 12,9% í síðustu könnun.

Fylgi Viðreisnar mældist nú 7,8% og mældist 8,5% í síðustu könnun.

Fylgi Miðflokks mældist nú 6,9% og mældist 5,9% í síðustu könnun.

Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,7% og mældist 4,2% í síðustu könnun.

Fylgi annarra flokka mældist 4,6% samanlagt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert