Eldsvoði á Ísafirði

mbl.is/Eggert

Eldur kom upp í íbúðarhúsi á Ísafirði skömmu eftir miðnætti í nótt. Engin slys urðu á fólki en talsvert tjón, að sögn varðstjóra í lögreglunni á Ísafirði.

Slökkviliðið á Ísafirði slökkti eldinn en ekki er vitað um upptök eldsins og málið í rannsókn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert