Lottó og pylsa í Staðarskála

Það getur borgað sig að kaupa lottómiða þegar hungrið sverfur …
Það getur borgað sig að kaupa lottómiða þegar hungrið sverfur að og áð er í söluskála. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sunnlendingur fékk þriðja vinninginn í fyrsta útdrætti ársins í EuroJackpot, vinning upp á rúmlega 14,5 milljónir króna. Er þetta annar stóri vinningurinn sem kemur til Íslands á aðeins 4 vikum. Miðann hafði hann keypt í Krambúðinni á Selfossi. Vinningshafinn sagðist vera mjög svo ánægður eldri borgari og að vinningurinn kæmi sér afar vel enda geti það verið snúið að ná endum saman á lífeyrinum einum saman. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Stuttu síðar komu hjón að norðan á skrifstofu Íslenskrar getspár í Laugardalnum en þau áttu leið fram hjá Staðarskála síðasta laugardag þegar hungrið sagði skyndilega til sín.

„Var því ákveðið að stoppa og fá sér pylsu. Þau voru að klára að borga þegar konan allt í einu mundi eftir því að hún hafði ætlað sér að kaupa lottómiða fyrir helgina. Honum var því bætt við á síðustu stundu og sem betur fer, því á miðanum leyndust rétt tæpar 22 milljónir. Það var ekki fyrr en í vikunni að maðurinn átti erindi út í sjoppu að hann lét rúlla miðanum í gegnum lottókassann sem söng þá svo fallega fyrir hann. Hann dreif sig heim til að segja konu sinni fréttirnar góðu og fram undan var svo svefnlítil nótt. Ekkert annað var því í stöðunni daginn eftir en að drífa sig í borgina með miðann og koma honum í öruggar hendur starfsfólks Getspár,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert