Kalt loft þvingar sér yfir landið

Kort/Veðurstofa Íslands

Nú í morgunsárið nálgast kuldaskil landið úr vestri. Þessi skil eru afskaplega skörp og um miðjan morgun kemur mun kaldara loft til okkar, fyrst á vestanverðu landinu. Þetta kalda loft þvingar sér yfir landið til austurs og mun því hlýna alls staðar áður en kólnar aftur. Skilin ýta rigningu á undan sér en á eftir þeim kemur snjór, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Upp úr hádegi snýst í hægari suðvestanátt og fer þá að élja allvíða. Eins og fyrr byrjar það vestast. Lengst af verður þurrt norðaustanlands en þar má einnig búast við éljagangi í kvöld.

Á morgun heldur útsynningurinn áfram með éljum og köldu veðri, en annað kvöld dregur enn á ný til tíðinda þar sem hvessir, hlýnar og fer að rigna. 

Það má því segja að það séu umhleypingar nú um helgina og líkur á að ísing og hálka myndist allvíða líkt og Vegagerðin hefur nú þegar vakið athygli á.

Á mánudag er útlit fyrir að lægi og rofi til og að dálítil ró færist yfir veðrakerfin. Vetrarlegt og tíðindalítið veður mun líklega ráða ríkjum framan af næstu viku, eða breytilegar áttir, él á víð og dreif og kalt í veðri.

Veðurspá fyrir næstu daga

Suðaustan 10-18 m/s og byrjar að rigna S- og V-til með morgninum, en síðan snjóa og kólnar í veðri. Hægast NA-lands og þurrt fram á kvöld. 
Snýst í suðvestan 5-13 með éljum upp úr hádegi, fyrst vestast. Víða vægt frost í kvöld og él um allt land.
Suðvestan 10-15 m/s og él á morgun, en léttskýjað NA-til. Frost 0 til 8 stig. Vaxandi suðaustanátt annað kvöld með snjókomu S- og V-lands, en síðar rigningu og hlýnar í veðri.

Á sunnudag:

Suðvestan 10-15 m/s og él, en léttskýjað NA-til. Frost 0 til 8 stig. Vaxandi suðaustanátt um kvöldið með snjókomu S- og V-lands, en síðar rigningu og hlýnar í veðri. 

Á mánudag:
Breytileg átt, él og hiti nálægt frostmarki, en suðaustan 13-20 m/s A-lands í fyrstu með rigningu og hiti 2 til 6 stig. Kólnar frekar um kvöldið. 

Á þriðjudag og miðvikudag:
Hæg breytileg átt, bjart með köflum og stöku él á víð og dreif. Herðir á frosti. 

Á fimmtudag:
Vaxandi suðaustanátt með snjókomu og síðan rigningu, en lengst af þurrt NA-lands. Hlýnar í veðri. 

Á föstudag:
Útlit fyrir suðlæga átt og rigningu, en úrkomulítið norðan heiða. Hiti 0 til 6 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert