Mynduðu hjarta og minntust Ada­mowicz

Samtök Pólverja á Íslandi heiðruðu minningu borgarstjóra Gdansk við fallega …
Samtök Pólverja á Íslandi heiðruðu minningu borgarstjóra Gdansk við fallega athöfn við Reykjavíkurtjörn í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tugir manna komu saman við Reykjavíkurtjörn í dag til að minnast Pawel Ada­mowicz, borgarstjóra Gdansk í Póllandi, sem lést á mánudag, eftir að hafa orðið fyrir hnífstungu­árás á góðgerðarviðburði kvöldið áður en hann var stung­inn í viðurvist hundraða vitna er hann flutti ávarp á sam­kom­unni. Ada­mowicz var borinn til grafar í kirkju heil­agr­ar Maríu í Gdansk í dag. 

Fjöldi Pólverja er harmi sleginn vegna morðsins og efndu Samtök Pólverja á Íslandi til minningarstundar um Ada­mowicz í dag við Reykjavíkurtjörn.

Þúsund­ir Pól­verja hafa minnst Ada­mowicz í borg­um og bæj­um Pól­lands …
Þúsund­ir Pól­verja hafa minnst Ada­mowicz í borg­um og bæj­um Pól­lands og vildu Samtök Pólverja á Íslandi gera slíkt hið sama. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það kom mér á óvart hversu margir komu,“ segir Alexander Witold Bogdanski, formaður Samtaka Pólverja á Íslandi. Kertum var raðar í snjóinn svo úr varð hjarta og í miðjuna var sett mynd af Ada­mowicz ásamt fleiri kertum.

Alexander þekkti Ada­mowicz persónulega og hafa síðustu dagar verið afar erfiðir. „Ég byrjaði á að flytja ræðu en þetta var svo persónulegt fyrir mig að ég gat ekki sagt mikið,“ segir Alexander. Sendiherra Póllands á Íslandi, Gerard Pokruszynski, tók þá við og þá flutti Dagur B. Eggertsson nokkur lokaorð sem Alexander þykir afar vænt um. Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar, þýddi ræðu Dags á pólsku.

„Þetta var falleg stund og við hugsuðum til borgarinnar okkar,“ segir Alexander, sem gekk í sama grunnskóla og Ada­mowicz í Gdansk.

Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, var á meðal viðstaddra, sem …
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, var á meðal viðstaddra, sem og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þó svo að mikil sorg ríki í Póllandi segir Alexander að ekki megi gleyma því að pólska þjóðin sé í dag klof­in í póli­tískri af­stöðu sinni. Miðillinn Politico hefur meðal annars fjallað um lát Ada­mowicz og segja að morðið und­ir­striki þá póli­tísku spennu sem ríki í Póllandi. „Það er okkar von að eitthvað breytist í Póllandi, þjóðin er klofin í dag en vonandi mun hann passa okkur frá himnum ofan,“ segir Alexander. 

Frá minningarstundinni í dag.
Frá minningarstundinni í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Pawel Ada­mowicz var vel liðinn af borg­ar­bú­um Gdansk og minning …
Pawel Ada­mowicz var vel liðinn af borg­ar­bú­um Gdansk og minning hans var heiðruð af Samtökum Pólverja á Íslandi í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert