Hafnaði utan vegar í Víðidal

Betur fór en á horfðist þegar hópbifreið með 30 ungmennum …
Betur fór en á horfðist þegar hópbifreið með 30 ungmennum hafnaði utan vegar í kvöld. Ljósmynd/Lögreglan á Norðurlandi vestra

Hópbifreið hafnaði utan vegar skammt sunnan við Víðihlíð í Víðidal í kvöld. Ökumaður og 30 farþegar, sem allir voru á aldrinum 16-19 ára, voru um borð í bifreiðinni. Engan sakaði að sögn lögreglunnar á Norðurlandi vestra.

Lögreglan greinir frá því, að tilkynning um óhappið hafi borist um kl. 22 í kvöld. Bifreiðin, sem var að aka í suðurátt, var á hjólunum allan tímann, að því er lögreglan greinir frá.

Hún segir enn fremur, að það hafi gengið vel að ná bifreiðinni upp með aðstoð björgunarsveita og bónda af nálægum sveitabæ á stórri dráttarvél.

Þá fór fólkið fór í gistingu í nágrenninu og ætlar bíða með áframhald ferðar til morguns.

Þess má geta að mikil hálka er á vegum á þessum slóðum og mjög hvasst og eru ökumenn beðnir að sýna varúð og aðgætni að sögn lögreglunnar á Norðurlandi vestra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert