Tölva Hauks á leið til landsins

Haukur Hilmarsson.
Haukur Hilmarsson.

Eva Hauksdóttir, móðir Hauks Hilmarssonar sem talinn er hafa látið lífið í Afrin-héraði í Sýrlandi í fyrra, greinir frá því á vefsíðu sinni að tölva Hauks sé komin til Evrópu fyrir tilstilli Ögmundar Jónassonar. Hún reiknar með því að tölvan komi til Íslands fljótlega.

Fyrir utan fólk sem ég þekki persónulega var einn stjórnmálamaður sem strax hafði beint samband við mig og bauð fram aðstoð,“ skrifar Eva en hún hefur reynt að fá upplýsingar um afdrif Hauks. „Það var Ögmundur Jónasson.

Eva segist hafa látið Ögmund heyra það í gegnum tíðina þegar hún hefur verið óánægð með hann en hann greinilega ekki látið það hafa nein áhrif á sig. 

Hann kom á beinu sambandi milli fjölskyldunnar og talsmanns Kúrda hjá Evrópuþinginu, sem talaði við bæði mig og Hilmar í síma og sendi bréf. Nú í janúar kom Ögmundur svo á fundi með þremur talsmönnum Kúrda og bauð mér m.a.s. heim til sín til að hitta þau. Sá fundur hefur nú skilað þeim árangri að tölvan hans Hauks er komin til Evrópu og við reiknum með að hún komi til Íslands fljótlega,“ skrifar Eva og þakkar Ögmundi fyrir.

Eva Hauksdóttir.
Eva Hauksdóttir. Ljósmynd/Brian Sweeny

Hún er hóflega bjartsýn á að það verði hægt að endurheimta gögn. „Kannski er þar eitthvað að finna sem varpar frekara ljósi á það sem Haukur var að hugsa og gera í Sýrlandi og þetta ár sem hann var að undirbúa för sína þangað,“ skrifar Eva og bætir því við að hana langi ekki að gera neitt nema skoða þessa tölvu:

Finna kannski dagbókarfærslur, kannski skrýtnar hugrenningar eða einhver þessara kvæða  sem ég kann ekki nema að hluta. Ég reikna ekki með fleiri orðaskiptum eða fleiri faðmlögum en mögulega eigum við eftir að sjá eitthvað um það hvernig skoðanir hans og hugmyndir breyttust síðasta árið. Kannski, en bara kannski, leynist þar einhver fjársjóður. Kannski ein lítil frásögn. Kannski eitt ljóð enn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert