Leggja fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá

Þingflokkur Pírata hefur lagt fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá.
Þingflokkur Pírata hefur lagt fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá. Ljósmynd/Aðsend

Þingflokkur Pírata hefur lagt fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá, sem byggir á frumvarpi stjórnlagaráðs og þeirri vinnu sem Alþingi fór í í kjölfarið. Er þetta í fyrsta skiptið sem slíkt frumvarp er lagt fram, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Pírötum, sem segja frumvarpið veita möguleika á að halda vinnunni við nýju stjórnarskrána áfram þar sem frá var horfið árið 2013.

Þjóðaratkvæðagreiðsla um gildistöku nýju stjórnarskrárinnar hafi farið fram 20. október 2012 og hafi þá rúmir þeirra sem greiddu atkvæði svarað því til að leggja ætti tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar nýrri stjórnarskrá. Þrátt fyrir það hafi Alþingi enn ekki lokið við lögfestingu nýju stjórnarskrárinnar.

Segir í tilkynningunni að þingflokkur Pírata vilji með þessu leggja sitt af mörkum til að sá vilji íslensku þjóðarinnar að fá nýja stjórnarskrá verði virtur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert