Enginn samningur og ekkert samráð

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. mbl.is/Sigurður Bogi

Stjórn Neytendasamtakanna hefur áhyggjur af stöðu leigjendamála á Íslandi og lýsir yfir furðu á samráðsleysi við samtökin í tengslum við tillögur átakshóps við vanda á húsnæðismarkaði. Þá gagnrýnir stjórnin að samningur Neytendasamtakanna og ríkisins um leigjendaaðstoð hafi ekki verið endurnýjaður.

Í ályktun sem stjórn samtakanna sendi frá sér núna í kvöld kemur fram að samtökin hafi um árabil sinnt ráðgjöf og lagalegri aðstoð við leigjendur ásamt því að sinna almennri hagsmunagæslu leigjenda. Frá árinu 2011 hafi samtökin gert árlegan samning við velferðarráðuneytið um ákveðna þætti þeirrar þjónustu.

„Nú hefur samningur um leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna runnið úr gildi og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í heilt ár hafa samtökin ekki hlotið áheyrn ráðherra húsnæðismála með það fyrir augum að endurnýja samninginn,“ segir í ályktuninni en þar kemur einnig fram að samtökin sinni þó áfram aðstoð við leigjendur í neyð.

„Mikil eftirspurn er eftir þjónustunni og er hún vel þekkt meðal fólks á leigumarkaði og leituðu á þriðja þúsund leigjenda til hennar árið 2017, þar af um fimmtungur erlendir ríkisborgarar. Það kom því á óvart að starfshópur stjórnvalda í húsnæðismálum skuli ekki hafa haft samráð við Neytendasamtökin við vinnu skýrslunnar. Þessi skortur á samráði, ásamt því að ekki hefur verið brugðist við óskum um endurnýjun samnings, eru nöturleg skilaboð til leigjenda á Íslandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert