Lögregla leitar 9 ára drengja á Suðurnesjum

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Suðurnesjum leitar nú að tveimur níu ára drengjum, Þorgeiri og Orra Steini úr Grindavík. Drengirnir skiluðu sér ekki heim eftir skóla í dag og eru fjölskyldur þeirra nú að leita að þeim á svæðinu.

Þorgeir var klæddur í svarta og hvíta úlpu, dökkgráar buxur, stígvél, að því er fram kemur á Facebook-síðu lögreglunnar. Þá er hann sagður vera á reiðhjóli og með bláan hjálm.
Orri Steinn var klæddur sams konar úlpu og Þorgeir, gráum buxum og stigaskóm. Þá var hann á hlaupahjóli.

Biður lögregla alla Grindvíkinga um að svipast um inni hjá sér og kanna hvort drengirnir kunni að vera í heimsókn hjá einhverjum skólafélaga.

Eru þeir sem séð hafa til drengjanna beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða með skilaboðum í gegnum Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert