Umferðartafir á Vesturlandsvegi

mbl.is/Arnþór Birkisson

Umferðartafir eru nú á Vesturlandsveginum á leiðinni út úr bænum. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er ástæðan minni háttar umferðaróhapp sem vöruflutningabíll lenti í á veginum.

Engin meiðsl urðu á fólki og verið er að vinna að því að koma flutningabílnum á brott. Vegna stærðar ökutæksins hafi aðgerðirnar hins vegar valdið þó nokkrum töfum á umferð.

Búist er þó við að greiðist úr umferðartöfunum fljótlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert